Samherji

Samherji

Share

Samherji, founded in 1983, is a leading seafood company in Iceland. Operating a fleet of fishing vessels, white fish factories and fish farming.

Samherji also runs sales and marketing operations.

Samherji selur Margréti EA-710 01/10/2026

Samherji hefur selt uppsjávarskipið Margréti EA-710. Skipið hefur verið afhent kaupanda í Færeyjum og hafa nýir eigendur gefið því nafnið Ísborg.

Samherji selur Margréti EA-710 Samherji hefur selt uppsjávarskipið Margréti EA-710.

Verkefnið snýst um að framleiða hágæðavöru 23/09/2026

„Fjölbreytni er líklega einn helsti kosturinn við starfið, engir tveir dagar eru eins og alltaf einhverjar breytingar,“ segir Hjalti Hjaltason, verkstjóri í fiskvinnsluhúsi Samherja á Dalvík.

Hjalti fagnar 60 ára afmæli í dag. Hann hefur starfað við fiskvinnslu í hartnær 45 ár og verið verkstjóri í yfir þrjá áratugi. „Það var svo sem ekki um margt að velja hér á sínum tíma. Fiskurinn bara greip mann og hefur ekki sleppt síðan,“ segir Hjalti um þá ákvörðun að hefja störf í Salthúsinu á Dalvík um 16 ára aldur.

Hann segir að hefðbundinn dagur hefjist á því að koma vinnslunni af stað en einnig að fara yfir breytingar á áherslum í skurði og pökkun, með öðrum orðum hvers konar vöru óskað er eftir. „Þá skiptir öllu máli gott samstarf við starfsfólk í sölumálum sem er í tengslum við erlenda kaupendur og auðvitað samspil með fiskvinnslunni á Akureyri. Verkefnið snýst um að meta hvaða hráefni er í boði hverju sinni og hvernig á að vinna það til að framleiða hágæðavöru og mæta kröfum viðskiptavina sem best,“ segir Hjalti.

Hægt er að lesa viðtalið í heild á vef Samherja.

Verkefnið snýst um að framleiða hágæðavöru „Fjölbreytni er líklega einn helsti kosturinn við starfið, engir tveir dagar eru eins og alltaf einhverjar breytingar,“ segir Hjalti Hjaltason, verkstjóri

Photos from Samherji's post 15/09/2026

Glæsilegt Filippseyjakvöld hjá starfsfólki ÚA.

Um 110 starfsmenn og gestir tóku þátt í vel heppnuðu Filippseyjakvöldi á laugardaginn, sem haldið var á vegum starfsmannafélags Útgerðarfélags Akureyringa (STÚA).

Þjóðarkvöld sem þetta eru reglulegur liður í starfi starfsmannafélaga Samherja. Þau hafa meðal annars þann tilgang að styrkja tengsl og varpa ljósi á ólíka menningu.

Hjá ÚA starfa um 30 manns sem eiga uppruna sinn að rekja til Filippseyja. Starfsfólk úr þeim hópi annaðist undirbúning matar- og skemmtikvöldsins sem var allt hið glæsilegasta, með veglegu matarhlaðborði, flottum skreytingum og metnaðarfullum skemmtiatriðum eins og þjóðdönsum og söngvum.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá gleðinni sem Sævar Geir Sigurjónsson og Bethsaida Rún Arnarson tóku.

Síldarvertíð er hafin 14/09/2026

Vilhelm Þorsteinsson EA-11 kom til Eskifjarðar í morgun með um 950 tonn af síld, sem er fyrsti farmur skipsins á nýhafinni síldarvertíð.

„Þetta er bara mjög góð síld og ætti að vera úrvalshráefni,“ segir Birkir Hreinsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni.

Síldarvertíð er hafin Vilhelm Þorsteinsson EA-11 kom til Eskifjarðar í morgun með um 950 tonn af síld, sem er fyrsti farmur skipsins á nýhafinni síldarvertíð.

Besti bitinn: Þorskhnakki í kryddhjúpi með sítrónusmjöri 09/09/2026

Hefur þú prófað þessa?

Þorskhnakkar í kryddhjúpi með sítrónusmjöri, uppskrift eftir Lindu Benediktsdóttur, þar sem hún notar „Besta bitann af þorskinum“.

„Ef þú ert að leita að fiskrétti sem er bæði einfaldur í gerð og smakkast eins og eitthvað sem þú myndir fá á góðum veitingastað, þá þarftu að prófa þessa þorskhnakka,“ segir Linda.

Besti bitinn: Þorskhnakki í kryddhjúpi með sítrónusmjöri Fagfólk velur gjarnan þorskhnakka þegar áferð og hreint bragð eiga að njóta sín. Þorskhnakki í kryddhjúpi með sítrónusmjöri, uppskrift eftir Lindu Benediktsdóttur, er réttur sem við ættum ekki að láta fram hjá okkur fara í dag.

www.samherji.is 04/09/2026

Treyjudagurinn var haldinn í dag, í fyrsta sinn á Íslandi, til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Starfsfólk Samherja lét ekki sitt eftir liggja og mátti sjá hinar ýmsu litríku íþróttatreyjur á starfsstöðvum fyrirtækisins í dag.

www.samherji.is

Landvinnsla Samherja komin á fulla ferð eftir sumarleyfi 03/09/2026

„Það má eiginlega segja að húsin fari í slipp, eins og skipin. Þá gefst færi á að sinna viðhaldi, gera breytingar og ráðast í verkefni sem erfitt er að framkvæma á meðan framleiðslan er í fullum gangi. Í sumar voru töluverð umsvif í húsinu, allt að 50 iðnaðarmenn á dag sem unnu að viðhaldi, lagfæringum og uppsetningu nýs tæknibúnaðar,“ segir Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri hjá ÚA.

Landvinnsla Samherja komin á fulla ferð eftir sumarleyfi Starfsfólk í landvinnslu Samherja hefur snúið til starfa eftir sumarleyfi og starfsemin er komin á fulla ferð.

Photos from Samherji's post 27/08/2026

Kveður Samherja á sextugsafmælinu eftir 30 ára starf á Laugum.

Guðný Ingibjörg Grímsdóttir starfsmaður hjá fiskþurrkun Samherja á Laugum í Reykjadal lætur af störfum nú um mánaðamótin. Hún hóf störf í fiskþurrkun árið 1996.

„Þá byrjaði ég bara í glenningu og það var ekki eins og í dag, öll þessi færibandavinna sem við þekkjum, heldur var þetta handgert. Svo var ég í afslætti líka og pökkun. Eftir að Samherji tók við þessu þá fór ég fljótlega að sjá um eldhúsið og starfsmannaaðstöðuna. Ég hef verið hér í þessi 30 ár, helming ævinnar, og gengið í nánast öll störf,“ segir Guðný. Auk þess hefur hún gegnt stöðu trúnaðarmanns á vinnustaðnum í um 20 ár.

Efnt var til kaffisamsætis í morgun með starfsfólki á Laugum vegna þessara tímamóta en einnig til að fagna sextugsafmæli Guðnýjar sem er í dag. Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja þakkaði Guðnýju fyrir langt og gott samstarf.

„Þetta hefur verið frábær vinnustaður í alla staði. Það sem stendur upp úr eru framfarirnar og hvernig tæknin hefur þróast. Frá því ég byrjaði og til dagsins í dag má segja að það hafi verið þrjár kynslóðir vinnslulína. Starfsmannafjöldinn hefur á sama tíma haldist svipaður og ég tel að þessi vinnustaður skipti samfélagið miklu máli. Þannig að ég kveð mjög sátt við þennan tíma,“ segir Guðný Ingibjörg Grímsdóttir.

Makrílvertíð í fullum gangi 27/08/2026

Makrílvertíð í fullum gangi. „Þetta eru skemmtilegar veiðar en geta verið krefjandi. Það er svolítið minna af makrílnum núna en áður og hann fer hratt yfir. Makríllinn getur verið brögðóttur, blossar upp og svo sjáum við ekki neitt í langan tíma. Það getur því verið áskorun að finna hann,“ segir Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri á Vilhelm Þorsteinssyni.

Makrílvertíð í fullum gangi Vilhelm Þorsteinsson EA 11, uppsjávarskip Samherja, kom til Neskaupstaðar í gær með um 700 tonn af makríl. Makrílvertíðin er vel á veg komin og hefur gengi

Want your business to be the top-listed Food & Beverage Service in Akureyri?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Category

Telephone

Address


Glerárgata 30
Akureyri
600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Samherji posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Subscribe

We will notify you when anything happens in Akureyri.