Hamrarnir
📍Akureyri
🏟️ Greifavöllur
🔜 4. Deild 2027
🏆 5. Deild 2026 Deildarmeistarar
🏆 Utandeild 2025 Deildarmeistarar
15/09/2026
LOKAHÓF HAMRANNA 2026⚫️🟡🏆
Lokahóf Hamranna var haldið síðastliðinn laugardag eftir úrslitaleikinn þar sem liðið tryggði sér 5. deildar bikarinn.
Eftir langt og viðburðaríkt tímabil var svo sannarlega tilefni til að fagna. Liðið skemmti sér konunglega heima hjá Gunnari Þóri, framkvæmdastjóra, stofnanda og leikmanni Hamranna. Þar beið okkar frábær matur sem kokkurinn töfraði fram fyrir liðið og voru allir bæði saddir og alsælir.
Kvöldinu lauk svo með verðlaunaafhendingu þar sem veittar voru viðurkenningar fyrir frábært tímabil í 5. deildinni.
Það var svo sannarlega ekki auðvelt að velja í ár þar sem hópurinn er fullur af öflugum leikmönnum sem allir hafa lagt sitt af mörkum til að gera þetta tímabil að því sem það varð.
13/09/2026
Hamrarnir-Skallagrímur
Úrslitaleikur
Myndir: Armann Hinrik
13/09/2026
Hamrarnir-Skallagrímur
2-0 sigur á Skallagrím í úrslitaleiknum og við erum deildarmeistarar!🖤💛
Myndir: Armann Hinrik
11/09/2026
LEIKDAGUR!
Nú er komið að stóra deginum.
Úrslitaleikur 5. deildar karla og bikarinn er í boði.
Hamrarnir – Skallagrímur
📅 12. september | 16:00
📍 VÍS-völlurinn, Þórsvæði
Við höfum lagt ótal klukkustundir í þetta tímabil. Nú er komið að því að uppskera vinnuna.
Mætum öll á völlinn og klárum þetta saman.
ÁFRAM HAMRARNIR! 🖤💛
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Website
Address
Dalsbraut, 600 Akureyri
Akureyri
600