Kanínuholan - The Rabbithole
Kanínuholan er fornbókaveröld í Holtunum / The Rabbithole is a magical world of books in Reykjavík.
26/09/2026
Svört orkídea er komin út hjá Skriðu! Það var fullt úr dyrum á verkstæði Skriðu. Fermingarveisla ársins, brauðtertur og hnallþórur og svo upplestur á færeysku og íslensku. Gæti ekki verið hamingjusamari með þessa fallegu bók. Takk Vónbjört og Birta 🙏— 🌕 Skriða skridabokautgafa Vónbjørt Vang móa
12/09/2026
Rakst á þessa dásamlegu bók í holunni — hún er augljóslega ekki til sölu 🥸🌝
11/09/2026
Rosebud Postitalo er ótrúlega fögur bókabúð í Helsinki beint á móti lestarstöðinni. Í henni fann ég allt það sem hugurinn girntist og mögulega aðeins meira til — sendiherra Kanínuholunnar mælir með🐰🐙💫 Rosebud Books
25/08/2026
25. ágúst, afmæli pabba, Geirlaugs Magnússonar. Jafnframt var Kanínuholan stofnuð þennan dag fyrir 6 árum síðan (25.08.2020). Ég held upp á daginn með óhóflegri kaffineyslu, set Dylan á fóninn og aldrei að vita nema kona taki einn rússa eða jafnvel langavitleysu. ♠️♦️♣️♥️☕️🥸 móa
24/08/2026
Kári Túliníus skáld kom með glænýja og skínandi fína ljóðabók sína: Mánahjörð. Hún er nefnilega nýkomin út hjá bókaútgáfunni Þúfan. Við ræddum lífið, dauðann, smásagnahátíð Stelks í haust og svo allt hitt. Nú að sjálfsögðu er bóksali langt komin með sjöþúsundustu bókabúðartiltektina 🐝🥸🌝 .is
22/08/2026
Menningarnótt- Í anda mannréttinda og mannúðar.
Félagið Ísland-Palestína og almannaheillafélagið Vonarbrú taka höndum saman og standa fyrir gleði- og gæðastund á Menningarnótt, í samstöðu og samkennd.
Hvar: Í garðinum að Auðarstræti 11, 105 Reykjavík.
Hvenær: Laugardaginn 22. ágúst kl. 14-20.
Boðið verður upp á ýmsan söluvarning og
listviðburði svo sem upplestur, tónlist og dans til að efla andann fyrir öll þau sem vilja styðja fólk sem sætir þjóðarmorði.
Merkið ykkur endilega áhugasöm hér og fylgist með í aðdragandanum. Við þiggjum einnig deilingar ykkar með kærum þökkum svo sem allra flest viti af.
DAGSKRÁ 🌷
Dagskráin á morgun í Auðarstræti 11
Kl. 14.00 Garðurinn opinn og við bjóðum öll hjartanlega velkomin. Félögin Ísland-Palestína og Vonarbrú verða með varning til sýnis og sölu; boli, klúta, kökur, sælgæti, sultur, bækur, fatnað, leikföng, armbönd, klúta og margt fleira.
Kl. 14.30 Formleg dagskrá er opnuð með flutningi á ljóðinu Hugsið um hin (Think of others) eftir Mahmoud Darwish.
Írska listakonan Aoife O’Brian flytur tónlist
Ljóð Mosab Abu Toha úr ljóðabókinni Það sem kann að leynast í eyra mínu í þýðingu Móheiðar Geirlaugsdóttur. Guðrún Jónsdóttir stjórnarkona í Vonarbrú les.
Kl. 15.30 Hamza Abukamleh kennir og leiðir fjöldadans - Dabke dansinn, sem á sér djúpar rætur í palestínskri menningu. Sjá umfjöllun um hann á Vonarbrúar síðunni hér á Facebook.
Kl. 16.30 Snorri Helgason flytur nokkiur lög
Kl. 17.30 Ljóðalestur - Ásdís Ingólfsdóttir flytur ljóð sem tengjast Palestínu
Kl. 18.30 Ávarp frá Reham Khaled vinkonu okkar á Gaza. Ragnheiður Steindórsdóttir leikkona flytur.
Tónlistarflutningur Apex Amina
Kl. 19.30 Jón lærði: Særingakvæðið Snjáfjallavísur. Viðar Hreinsson framkvæmir særingarnar.
Kl. 20.00 Dagskrárlok
Dagskrárstjóri Ásdís Ingólfsdóttir
Inn á milli gefst góður tími til að rölta á milli tjaldanna, skoða varning og eiga innihaldsríkt samtal við hvert annað. BDS sniðgönguhreyfingin verður á svæðinu og veitir okkur góð ráð um sniðgöngu.
Smávægilegar breytingar geta orðið á dagskránni.
Hrefna Guðmundsdóttir Vonarbrú Félagið Ísland-Palestína Ásdís Ingólfsdóttir
16/08/2026
Glaðsinna hópur Skota gerðu góða heimsókn í holuna rétt eftir að ég opnaði eftir nokkurra vikna sumarfrí. Það var mikil gleði að hitta fyrrum landa, sem voru auðvitað smekkfólk á bókmenntir og ljóðlist auk þess sem rætt var um einn af mínum uppáhaldskollegum í heimaborg þeirra, krúttlegu underground lestirnar þeirra og svo auðvitað veðrið, nema hvað! / A cheery bunch o’ Scots dropped by for a grand wee visit to the Rabbithole right after I opened up. It was a proper buzz catching up wi’ folk from my old stomping ground—cracking folk with dead good taste in books and poetry, mind. We got to blethering about one of my favourite colleagues back in their home toon, their wee cute subway trains, and, well... the weather, naturally! ☔️
Kliknij tutaj, aby odebrać Sponsorowane Ogłoszenie.
Kategoria
Kontakt: firmę
Strona internetowa
Adres
Eyrargata
Poznan
450
Powiadomienia
Bądź na bieżąco: wyślemy Ci e-mail, gdy Kanínuholan - The Rabbithole opublikuje nowości i promocje. Twój adres e-mail nie zostanie wykorzystany do żadnego innego celu, a subskrypcję możesz anulować w dowolnym momencie.